Það er orðin dálítil klisja að tala um að í kreppunni felist sóknarfæri, en á um daginn sat ég fund með fólki sem sannar það. Fundurinn var á vegum Hugmyndaráðuneytisins, en þar kynnti Hjálmar Gíslason hugmyndir sínar um gegnsæi, óhindrað aðgengi að upplýsingum og nýting gagna við upplýsta ákvarðanatöku — nokkuð sem á eftir að skipta höfuðmáli við endurreisn Íslands.

Hjálmar nálgast hrunið á eigin forsendum, en hann er tölvukall. Fyrir tæpu ári stofnaði hann fyrirtækið DataMarket, sem hefur það að markmiði að taka inn hrá, óaðgengileg gögn og búa til úr þeim skýrar upplýsingar. Hann sér fyrir sér að hægt væri að safna öllum gögnum sem verða til í hinum ýmsu afkimum ríkisstofnana, svo hægt sé að búa til það sem hann kallar mælaborð Íslands.

Ef mælaborð landsins væri opið og öllum aðgengilegt myndi það hafa nokkur atriði í för með sér:

  • Stjórnvöld hefðu betri yfirsýn, sem myndi væntalega tryggja betri ákvarðanatöku.
  • Auðveldara yrði að sýna ríkinu aðhald, meðal annars vegna þess að fjölmiðlar hefðu aukin tækifæri til að kafa ofan í upplýsingar sem oft er djúpt á í dag.
  • Traust á kerfinu myndi aukast, þar sem hver sem er gæti séð hvernig það virkaði — frekar en að þurfa að trúa áróðri æðstu embættismanna.

Ég varð oft vitni að því sem blaðamaður, að ríkisstofnanir sitja á opinberum gögnum eins og ormar á gulli. Þegar um er að ræða gögn sem snúa að sameiginlegum rekstri þjóðarinnar, þá á sú leyndarhyggja ekki rétt á sér. Ríkinu ber að leggja spilin á borðið, og þjóðin á heimtingu á því.

Hugmyndaríkt fólk eins og Hjálmar getur síðan unnið úr gögnunum, svo við eigum öll jafnmikinn möguleika á að vera inni í málunum.

§20 · febrúar 23, 2009 · Pistlar · · [Print]

2 Comments to “Opnum upp á gátt”

  1. Sæll Andrés,

    Þakka hlý orð. Gaman til þess að vita að menn eins og þú taki þessa hugsun með inn í póltíska ferilinn. Það fyllir mann von um breytta tíma í stjórnsýslu á komandi árum.

  2. Blessaður Hjálmar,
    það er vonandi að sem flestir stjórnmálamenn þokist í átt til opnari og traustari stjórnsýslu – og gott að hafa tæknimennina til að gera það mögulegt.