Kjördæmisfundur VG hefur samþykkt glæsilega framboðslista í Reykjavíkurkjördæmunum. Fólk skiptist tvist og bast á milli kjördæmanna, og ég er einn þeirra sem ekki á eftir að geta kosið sjálfan sig eftir mánuð. Ég bý nefnilega norðanmegin miðlínu Reykjavíkur, en hef lent sunnanmegin sömu línu á framboðslista.

Ég nýt þess hins vegar að vera á lista með óhemjufínu fólki á lista VG í Reykjavík-suður. Listann leiðir Svandís Svavarsdóttir, sem er einhver flottasti pólitíkus sem ég hef séð. Á eftir henni er runa af glæsilegum frambjóðendum – og vonast ég til að vera flokknum til sóma í mínu þrettánda sæti.

§56 · mars 19, 2009 · Pistlar · · [Print]

1 Comment to “Allt er, þá þrettán er”

  1. Glæsilegt – en ég hefði vissulega viljað sjá þig ofar!