Það væri synd að segja að stjórnarandstaðan væri að nýta tímann vel inni á Alþingi þessa dagana. Sjálfstæðismönnum tókst að þæfa umræðu um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi í þrjá tíma í gærkvöld.
Maður þarf samt að hrósa því sem vel er gert, og þar ber að benda sérstaklega á ræðu Árna Johnsen. Hún er vel virði þeirra fimm mínútna sem tekur að horfa á hana. Þótt klukkan hafi verið langt gengin tólf á miðnætti heldur Árni innblásna ræðu um fegurð íslenskra kvikmynda, og lýkur henni á því að raula lagstúf sem hann segir að myndi sóma sér vel í byrjun kvikmyndar.
Er þetta í fyrsta sinn sem þingmaður syngur úr púlti?