Þá er búið að skipa samninganefnd Íslands við ESB, sbr. fréttatilkynningu utanríkisráðuneytis. Mér hefði nú þótt mega láta hópinn vera meiri þverskurð þjóðarinnar en reyndin er. Þetta eru mestmegnis millistjórnendur í ráðuneytum – og ægilega hátt hlutfall lögfræðinga.

Hins vegar þykir mér ánægjulegt að sjá hópinn endurspegla kynjahlutföll þjóðarinnar sæmilega. Af 18 einstaklingum á þessum lista eru 10 konur.

Svo við greinum listann út frá kynferði þá skiptast stigin svona:

  • Formaður samninganefndar er karl
  • Varaformenn nefndarinnar eru tveir: karl og kona
  • Tveir af sex fulltrúum í nefndinni eru konur

Þarna líta hlutföllin ekki nógu vel út, en viðsnúningur verður þegar lesið er áfram: Sjö af tíu formönnum samningahópa eru konur!

Þetta er kannski ekki eins stórkostlegur sigur fyrir jafnrétti og ætla mætti, því karlmönnunum þremur er treyst fyrir formennsku hópanna sem semja um þau mál sem almennt er talið að skipta muni mestu máli í aðildarviðræðunum – sjávarútveg, landbúnað og myntbandalagið. Konurnar fá rest.

§74 · nóvember 4, 2009 · Pistlar · · [Print]

Comments are closed.