Tækifæri framtíðarinnar eru græn. Það er ekki aðeins siðferðislega rétt að setja loftslagsmálin á oddinn, vitandi hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa þegar haft og munu hafa ef ekki verður breytt um kúrs, heldur jafnframt efnahagslega gáfulegt.
Tækifærin í loftslagsvænum lausnum eru óteljandi og munu varða leiðina í atvinnu- og verðmætasköpun næstu áratugina. Ímynd Íslands sem náttúruperla, drifin áfram af hreinum orkugjöfum, verður sífellt verðmætari og veitir Íslendingum forskot á alþjóðlegum mörkuðum. Við eigum því að halda áfram að feta þessa braut – og gefa hraustlega í. Ísland á að vera meðal grænustu ríkja heims.
Borðleggjandi mál
Alþingi gafst tækifæri til að senda skýr skilaboð á þessa leið áður en þingmenn fóru í sumarfrí, því í þinglokasamningunum vildu Píratar m.a. sjá til þess að Alþingi bannaði frekari olíuleit við Ísland.
Að loka á olíuleit er algjörlega borðleggjandi mál. Vinnsla jarðefnaeldsneytis er á undanhaldi og allar áætlanir miða að því að ýta jarðefnaeldsneytinu út. Að veðja á olíuna núna væri því eins og að kaupa birgðir af Betamax-spólum.
Veigamestu rökin eru þó að það er einfaldlega óverjandi á þessum tímapunkti, vitandi hvers loftslagið krefst af okkur, að setja stefnuna á frekari bruna jarðefnaeldsneytis. Skilaboð Alþjóðaorkumálastofnunarinnar eru alveg skýr: Umbylta þarf orkukerfi heimsins og einblína á endurnýjanlega orkugjafa – orkugjafa sem Íslendingar hafa til þessa montað sig af.
Að banna frekari olíuleit við Ísland hefði því verið einfalt, eðlilegt og skýrt merki um hvaða hópi þjóða við viljum tilheyra. Hópi framsækinna, grænna og ábyrgra þjóða.
„Brennur á í dag“
Stjórnarflokkarnir höfðu ekki áhuga á því. Niðurstaðan varð að senda tillöguna til ríkisstjórnarinnar. Á mannamáli þýðir þetta að málið var svæft, því „þegar svona málum er vísað til ríkisstjórnar þá er aldrei fyrirfram hægt að gefa sér niðurstöðuna,“ eins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis komst að orði.
Formaðurinn taldi málið ekki aðkallandi. Ólíklegt væri að olíuleitarleyfi yrðu gefin út á næstunni og „þá getur það varla verið það sem brennur á í dag“ að banna olíuleit. Með sömu rökum er þó eðlilegt að komast að þveröfugri niðurstöðu. Einmitt af því að engin olíuleit er í gangi á Drekasvæðinu þá ætti að nýta tækifærið núna og banna olíuleit, skaðinn væri enginn. En nei, stjórnarflokkarnir vilja halda möguleikanum opnum.
Það „brennur á í dag“ að stöðva frekari olíuvinnslu. Norsk ungmenni eru a.m.k. þeirrar skoðunar. Þau telja að olíuleit Norðmanna brjóti á stjórnarskrárvörðum mannréttindum sínum og ætla að láta á það reyna fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Þetta er eitt af þeim atriðum sem ungmenni hafa haldið á lofti á vikulegum loftslagsmótmælum fyrir framan Alþingishúsið. Lífvænleiki jarðar og baráttan gegn loftslagsbreytingum brennur svo sannarlega á fólki.
Hver erum við?
Á alþjóðasviðinu er rætt um að stofna samband ríkja og fyrirtækja sem ætla að segja skilið við olíu- og kolanotkun og hverfa frá vinnslu jarðefnaeldsneytis. Ísland þarf að taka afstöðu til þess hvort við viljum tilheyra slíkum félagsskap.
Við, sem sjáum tækifærin og verðmætin í því að Ísland verði í fremstu röð í loftslagsmálum, vitum hvaða hópi við viljum tilheyra. Framtíðin verður á forsendum grænna, framsækinna og ábyrgra þjóða. Tökum því einföldu, eðlilegu og skýru afstöðuna. Bönnum olíuleit við Ísland.
Greinin birtist fyrst á Vísi 3. júlí 2021.