Píratar leggja sérstaka áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum og var stefna flokksins talin sú metnaðarfyllsta af Ungum umhverfissinnum. Aðgerðir gegn loftslagsbreytingum eru tækifæri til góðra breytinga á samfélaginu – baráttan gegn loftslagsbreytingum er á sama tíma baráttan fyrir sanngjarnari heimi, samfélagi sem tekur meira tillit til fólks og náttúru.
Nýsköpun er mikilvægur kjarni í loftslagsaðgerðum. Árangur okkar í loftslagsmálum veltur m.a. á því að ótal grænir sprotar nái að spretta. Þess vegna eru Píratar með framsækna nýsköpunarstefnu í 20 liðum, sem hljómar svona í mjög stuttu máli:
- Stórauka stuðning við uppbyggingu og rekstur þróunarsetra.
- Einfalda stofnun, skattaumhverfi og rekstur nýsköpunarfyrirtækja.
- Einfalda fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja.
- Áhersla á nýsköpun á öllum sviðum samfélagsins, ekki bara nýsköpun sem byggir á hátækni.
- Heildrænna, aðgengilegra, sveigjanlegra og kvikara styrkjaumhverfi.
- Stórauka fjármagn til ýmissa styrktar- og nýsköpunarsjóða.
- Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki á öllum stigum vaxtar.
- Gera vistkerfi nýsköpunar aðlaðandi fyrir alþjóðlega frumkvöðla.
- Aukinn stuðningur við alþjóðlega sókn nýsköpunarfyrirtækja.
- Gera atvinnustarfsemi á Íslandi aðlaðandi fyrir alþjóðleg fyrirtæki.
- Setja á fót alþjóðlega miðstöð þekkingar á sviði umhverfis- og loftslagsmála.
- Stofna Nýsköpunarráð sem leiðir vinnu við eflingu vistkerfis nýsköpunar á Íslandi.
- Tryggja fræðslu og þátttöku í nýsköpun á öllum stigum menntakerfisins.
- Styðja uppbyggingu Vísindagarða og styrkja tengsl atvinnulífsins við rannsóknir og frumkvöðlastarf innan háskólanna.
- Hvatning til atvinnulausra einstaklinga að taka þátt í nýsköpun.
- Nýsköpun og stafræn umbylting verði sett á oddinn innan opinbera geirans.
- Aukin símenntun í takt við tækni- og samfélagsbreytingar.
- Áhersla á útboð áskorana í stað fyrirfram skilgreindra lausna í opinberum innkaupum.
- Áhersla á aukið gagnsæi, opin gögn og frjálsan hugbúnað í stjórnsýslu.
- Byggja ekki aðeins upp sterkt frumkvöðlastarf, heldur líka grænt, skapandi og lifandi samfélag sem er hvetjandi til nýsköpunar alls staðar.
Með nýsköpunarstefnu, sem má nálgast hér í heild sinni, sem spilar saman við loftslagsáherslur, menntakerfi og verkalýðsmál getum við stefnt að sjálfbæru samfélagi fyrir framtíðina. Vöxum út úr loftslagskrísunni sem sterkara og betra samfélag. Framsýni – Ekkert kjaftæði.
Greinin birtist á Vísi 20. september 2021.