Skip to content

Ein­kunn Ís­lands: Ó­full­nægjandi

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að mæta til leiks með gamlar tuggur á loftslagsráðstefnuna COP26 í Glasgow. Þau markmið sem ráðherrar Íslands halda á lofti eru engan veginn nógu metnaðarfull né heldur endurspegla þau það neyðarástand sem ríkir í loftslagsmálum. Gullna tækifærið til að vera fyrirmyndarþjóð og hafa góð áhrif á þróun á alþjóðasviðinu týnist í miðjumoði stjórnvalda. Þessi sorglega niðurstaða var þó óhjákvæmileg afurð ríkisstjórnar sem er innbyrðis ósammála um þetta mikilvægasta viðfangsefni samtímans.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fór yfir helstu áherslur Íslands á COP26 í gær. Hún sagði að markmið Parísarsamningsins dygðu ekki til að hemja hlýnun Jarðar. Markmiðin þyrfti að uppfæra.

Þetta lá raunar alltaf fyrir. Reyndar var hreinlega byggt inn í Parísarsamninginn að fimm árum eftir samþykkt hans – og síðan á fimm ára fresti eftir það – þyrfti að uppfæra markmið og auka metnað.

Gömul, ófullnægjandi markmið

Katrín sagði að Ísland hefði boðað slíka uppfærslu á síðasta ári. Þar er um að ræða sameiginleg markmið Evrópusambandins um 55% samdrátt í losun fyrir árið 2030, málamiðlun á milli framsæknari afla og mestu kolafíkla í Evrópu. Ísland – ríki sem hefur alla burði til að vera í fararbroddi – er í samfloti með þessari málamiðlun í stað að setja sér sjálfstætt, metnaðarfyllra landsmarkmið. Markmið sem flokkur forsætisráðherra viðurkenndi í kosningabaráttunni að væri of veikt. Annar stór bautasteinn ríkisstjórnarinnar sem forsætisráðherra kynnti fyrir heimsbyggðinni í Glasgow var fjögurra ára gamalt markmið ríkisstjórnarinnar um kolefnishlutleysi 2040.

Þessi uppfærðu markmið duga ekki til frekar en hin fyrri.Climate Action Tracker lagðist yfir nokkur landsmarkmið, þar á meðal frá Noregi og Evrópusambandinu sem Ísland fylgir að málum, og komst að því að þau væru ófullnægjandi.Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna lagði saman öll uppfærðu landsmarkmiðin og komst að því að uppfærðar áætlanir aðildarríkjanna myndu leiða til 2,7°C hlýnunar á öldinni. Þó það sé ögn minni hlýnun en reiknuð var út á grunni eldri áætlana er það en engu að síður víðs fjarri markmiði Parísarsamningsins um að halda hlýnun innan við 1,5°C. Hlýnun sem mun hafa óafturkræf áhrif á vistkerfi heimsins.

Ísland hefur allt til að bera til að vera til fyrirmyndar í loftslagsmálum. En til þess þarf ríkisstjórn með raunverulegan metnað. Slík ríkisstjórn er ekki að fæðast í Ráðherrabústaðnum þessa dagana.


Greinin birtist á Vísi, 3. nóvember 2021.