Skip to content

„Því miður, en okkur er bara alveg sama“

Trans fólk veigrar sér oft við að leiðrétta kynskráningu sína í þjóðskrá. Ástæðan er einföld: enn eru til staðar fordómar gagnvart trans fólki, ekki aðeins í alþjóðasamfélaginu, heldur einnig hér heima fyrir. Fólki með hlutlausa skráningu kyns í vegabréfum er nefnilega hætt við að finna fyrir fordómum og verða fyrir áreitni á ferðalögum vegna kynskráningarinnar.

Ríkisstjórn Íslands hefur barið sér á brjóst og sagst standa með kynsegin fólki – svo ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar svar barst frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn sem ég lagði fram um stöðu hlutlausrar skráningar kyns í vegabréfum.

Í svarinu kemur fram að ráðuneytið hafi ekki gripið til sérstakra aðgerða til að verja handhafa vegabréfa með hlutlausa kynskráningu fyrir áreitni eða fordómum. Enn fremur hefur ekkert verið athugað eða rætt um það hvernig megi breyta reglum um vegabréf þannig að dregið sé úr hættunni á slíku áreiti. Ráðuneytið veit ekki einu sinni hvort eða hvaða ríki viðurkenni vegabréf erlendra ríkisborgara með hlutlausa skráningu kyns.

Ljóst er af svörunum að dómsmálaráðuneytið er algjörlega úti að aka:

„Dómsmálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar…“, „Upplýsingar […] liggja ekki fyrir í dómsmálaráðuneytinu…“, „Ekki hefur komið til umræðu í dómsmálaráðuneytinu…“, „Ekki hefur komið til athugunar í dómsmálaráðuneytinu…“, „Dómsmálaráðuneytinu hafa ekki borist upplýsingar…“

Þetta er sennilega eitt kærulausasta og slakasta svar sem ég hef fengið við fyrirspurn á ferli mínum sem þingmaður. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að halda því fram að hún standi vörð um mannréttindi, vinni gegn fordómum eða berjist gegn hatursorðræðu ef hún leggur engan metnað í að skoða stöðu jaðarsettra hópa? Það dugar nefnilega ekki bara að segjast ætla að gera eitthvað, það þarf að skoða stöðuna í alvöru, móta aðgerðir og hrinda þeim í framkvæmd. Annars er hópnum lítill greiði gerður. Það vekur upp falskar vonir og leiðir til sársaukafullra vonbrigða þegar á hólminn er komið.

Við sem störfum á Alþingi verðum að standa vörð um jaðarsetta hópa samfélagsins, ekki bara í orði heldur á borði sömuleiðis – lög um kynrænt sjálfræði eru merkingarlaus ef þeim er ekki fylgt eftir með ábyrgum og metnaðarfullum hætti. Tryggjum að trans fólki séu allir vegir færir og gerum þeim kleift að stjórna vegabréfaskráningu sinni á hátt sem valdeflir það – eins og til dæmis með því að heimila því að sækja um útgáfu aukalegs vegabréfs með annarri skráningu kyns til nota þar sem það treystir sér ekki til þess að nota kynhlutlaust vegabréf. Setjum valmöguleikana í þeirra hendur og gerum þeim auðvelt fyrir að velja það sem hentar þeim best að hverju sinni frammi fyrir ósanngjörnum, fordómafullum heimi sem gerir þeim erfitt fyrir.

Greinin birtist upphaflega á Vísi, 26. apríl 2022.