Það verður seint sagt að vísir.is sé femíniskasti fréttamiðill landsins, en alltaf ná þeir samt að koma manni jafnmikið á óvart með bullinu. Nýlegt dæmi er áfallið sem ég varð fyrir við að lesa greinarstúf undir yfirskriftinni „Vændi í fangelsi sem Finnar greiddu fyrir“ (sem upphaflega birtist í Fréttablaðinu, eins og starfsmaður Vísis hefur bent á). Hins vegar fékk ég drep í hjartað þegar ég bar stúfinn saman við upprunalega útgáfu fréttarinnar, sem VísirFréttablaðið virðist byggja á. Frétt finnska ríkisútvarpsins birtist á ensku undir fyrirsögninni „Finnish-Funded Prison Turns Brothel?“ og segir allt aðra sögu en VísirFréttablaðið.
Það er ekki nóg með að VísisFréttablaðspenninn missi af fréttinni í fréttinni, heldur nær hann að snúa út úr ótrúlega sorglegri frétt af grófri misnotkun kvenna, þannig að hún fær yfirbragð skemmtifréttar um konur sem eru svo útsjónarsamar í fangelsi að þær taka upp á því að stunda vændi. Það yfirbragð er undirstrikað með myndinni sem blaðamaðurinn velur: krosslagðir og kynþokkafullir kvenmannsleggir í netasokkabuxum.
Höldum einu atriði til haga: Þegar starfsmaður fangelsis hefur mök við fanga, þá heitir það nauðgun á íslensku.
Orðin skipta máli
Í fréttum skiptir náttúrulega ekki bara máli hvað er sagt, heldur líka hvernig er farið að því. Tökum til dæmis eftir því að gerendur eru algjörlega fjarlægðir úr frásögn VísisFréttablaðsins, þannig að mannlegi vinkill fréttarinnar hverfur:
„hvort vændi viðgangist í kvennafangelsi“
„að vændi viðgengist milli kvenfanganna og afganskra starfsmanna“
„grunur leiki á að stjórnendur fangelsisins blandist í málið“
Hver er gerandinn? Hvert er fórnarlambið í þessum setningum? Það er eins og vændið sé svínaflensusmit, sem hafi öllum að óvörum borist í fangelsið. Vændissmitið var reyndar greinilega svo stækt, að stjórnendur lentu í því.
Frásögn Finnanna notar annað orðfæri, og hefur allt annað yfirbragð.
„Vændið“ fór nefnilega þannig fram að fangar voru neyddir til að þjónusta fangaverði og gesti þeirra kynferðislega. Finnarnir kalla þetta athæfi réttu nafni. Misnotkun (e. abuse) er orðið sem þeir nota, þegar VísisFréttablaðspenninn skrifar vændi.
Konum var semsagt nauðgað í fangelsi, kannski seldur aðgangur að líkama þeirra, og VísirFréttablaðið kallar það vændi. Vísir birtir svo mynd af æsandi fótleggjum.
Reyndar hefur fréttamaður YLE eftir talsmanni finnska utanríkisráðuneytisins, að ekki sé víst að allar konurnar hafi verið þvingaðar til kynmakanna – heldur hafi fangaverðirnir einfaldlega nýtt sér eiturlyfjafíkn þeirra.
Ekki að það sé neitt skárra, því þá er valdaójafnvægið bara tvöfalt. Vörðurinn hefur yfirburði í krafti starfs síns, og fanginn stendur enn verr að vígi vegna fíknarinnar.
Og ennþá heitir þetta nauðgun.
Sorgarsagan sem ekki var sögð
Stærsta fréttin við hag afganskra kvenfanga fer algerlega framhjá VísisFréttablaðspennanum, en spilar stóra rullu hjá finnskum kollega hans. Tilvist fangelsisins í Sheberghan er hræðileg staðreynd – og var það áður en verðirnir fóru að nauðga föngunum.
Flestar konur sem sitja í fangelsi í Afganistan hafa nefnilega hlotið dóm fyrir kynlíf utan hjónabands. Þá gildir einu hvort þær hafa sjálfviljugar haft mök við karlmann sem þær eru ekki giftar, eða hvort þeim hefur verið nauðgað.
Kvenfangarnir sem VísirFréttablaðið skrifar um sitja semsagt inni fyrir að hafa verið nauðgað – og þeim er nauðgað!
Finnsk stjórnvöld ætluðu sér að skapa þessum konum griðarstað í fangelsinu – enda hafa þau einsett sér að utanríkisstefna landsins vinni að uppbyggingu í þágu kvenna. Finnar hafa væntanlega, svipað og aðrar þjóðir, gefist upp á að reyna að snúa afgönskum lögum til betri vegar, þannig að konur séu ekki fangelsaðar fyrir að vera nauðgað. Þá er ágæt millilending að bjóða þeim öruggan stað.
Utanríkisráðherra Finnlands segir ekki bara að málið verði rannsakað, eins og stendur í frétt VísisFréttablaðsins. Griðarstaður fyrir fórnarlömb nauðgana breyttist í nauðganabæli – og til að staðfesta það þurfti ekki langa rannsókn. Þetta er óásættanlegt, fangelsisverkefnið mistókst, segir ráðherrann, og því verður hætt.
Því Finnum þykir ekki fyndið að föngum sé nauðgað, og taka ekki þátt í svoleiðis rugli.
Birtist á Smugunni.