Hún lætur lítið yfir sér, fréttin af samningnum sem dómsmálaráðherra undirritaði í Brussel í dag – alveg hreint lygilega lítið miðað við hvað þessi samningur virðist verðskulda mikla umræðu áður en ákveðið er að skrifa undir hann. Prüm-samningurinn, sem Íslendingar er nú orðnir aðilar að, er útvíkkun á Schengen-samstarfinu. Er honum ætlað að efla lögreglusamstarf yfir landamæri, einkum í baráttunni gegn hryðjuverkum og glæpastarfsemi, eins og dómsmálaráðuneytið kemst að orði.

Þetta virðast vissulega vera göfug markmið, en samt sem áður ættu einhverjar viðvörunarbjöllur að fara af stað. Annars vegar vegna þess að umgengni íslenskra stjórnvalda við reglur sem snúa að landamærum hefur verið ansi frjálsleg í seinni tíð. Hins vegar vegna þess að útvíkkunin er svo víðtæk að það er ótrúlegt að málið hafi ekki hlotið opinbera umræðu áður en samningurinn var gerður. Samstarfið snýst nefnilega meðal annars um gagnkvæman aðgang aðildarríkjanna að fingrafara- og erfðaefnisskrám lögreglu. Auðvitað til að berjast gegn hryðjuverkum og glæpastarfsemi – sem er sígild orðræða stjórnvalda til að koma óvinsælli og umdeildri löggjöf í gegn.

En um óvinsældir getur ekki verið að ræða hér – því málið hefur ekki verið rætt. Ætli séu ekki einhverjir sem hefðu viljað gera athugasemdir á grundvelli persónuverndarsjónarmiða áður en ráðherrann skrifaði undir?

Opinber umræða hefði líka getað vakið máls á spurningunni um frjálsari för lögregluþjóna á milli ríkja, sem einnig er kveðið á um í samningnum. Þessir lögregluþjónar mega vera vopnaðir, ef reglur gistiríkisins leyfa það. Hvernig hefði búsáhaldabyltingin farið fram, ef Björn Bjarnason hefði skrifað undir Prüm-samninginn meðan hann var dómsmálaráðherra? Hefðu stjórnvöld þá getað sett reglugerð um vopnaburð og kallað til vopnaða danska lögreglumenn til að kveða niður lætin? Eða hefði bara verið hægt að fá útlenskar óeirðalöggur með prik og piparúða?

Það hefði verið ágætt að vita svörin við þessu áður en var sest niður með pennann í Brussel.

Því skal haldið til haga, fyrst Björn Bjarnason er nefndur, að hann hefði tæpast laumast til að útvíkka Schengen-samstarfið eins og nú hefur verið gert. Fyrir tveimur árum skrifaði hann eftirfarandi á heimasíðu sinni: „Leiti íslensk stjórnvöld eftir aðild að Prüm-samningnum verður málið rætt á alþingi og hvarvetna þar, sem ástæða er til að kynna það.”

(Birtist á Smugunni)

§92 · nóvember 30, 2009 · Pistlar · · [Print]

Comments are closed.